Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Ásdís Hjálmsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: Íţróttamađur og námsmađur
  • Hjúskaparstađa: Á föstu
  • Um mig: Ef ţiđ viljiđ vita eitthvađ meira um mig ţá er msniđ mitt asdis_hjalms@hotmail.com og mailiđ asdishjalms@gmail.com.

Innskráningar kubbur

Leit

Aftur yfir lágmarkiđ!

26. júní 2008 klukkan 21:38
Ég get nú ekki annað en verið sátt með árangurinn á þriðja móti sumarsins en ég kastaði 56,50 m sem er aftur yfir Ólympíulágmarkinu. Ég hefði nú viljað og ætlaði reyndar að kasta aðeins lengra en ég ákvað það fyrir mótið að ég yrði sátt við 55 m og ánægð með 56 m svo ég verð að standa við það og vera ánægð með þetta. Hlæjandi Það var smá svekk að sterkustu keppinautarnir hættu við að keppa fyrir mótið svo að ég átti besta árangurinn og gat þess vegna ekki verið þekkt fyrir neitt annað en að vinna þetta bara!Glottandi Vann mér meira að segja inn góðar 500 evrur í leiðinni sem er ekki slæmt svo ég tali nú ekki um þegar krónan er svona hræðilega lág.

Við Símon höfum svo allan daginn á morgun til að gera eitthvað skemmtilegt saman í Köben þar sem flugið okkar er ekki fyrr en annað kvöld. Það er aldrei að vita nema það verði verslað smá en það er allavega á hreinu að það verður haldið uppá velgengni síðustu tveggja vikna. Það verður svo gott að komast heim í rúma viku og hvíla lúin bein og vöðva.

Ásdís þreytta

PS: Ég finn ennþá ekkert til í hendinni!!Hlæjandi
Ásdís Hjálmsdóttir
13 athugasemdir

Peking hér kem ég!

25. júní 2008 klukkan 16:12
Ţá er ţađ loksins komiđ í höfn! Ég kastađi 57,49 m í Evrópubikar og náđi Ólympíulágmarkinu! Núna er ég á leiđinni til Köben og keppi ţar á morgun...vonandi verđ ég međ góđar frčttir!
Ásdís Hjálmsdóttir
4 athugasemdir

Ólympíublogg

16. júní 2008 klukkan 22:30
Vildi bara minna/benda á bloggið sem við í Ólympíuhóp frjálsíþróttasambandsins erum með. Ef þið hafið áhuga á frjálsum þá er hægt að fylgjast með okkur hér og endilega kommenta og hvetja! Síðan er hér .
Ásdís Hjálmsdóttir
18 athugasemdir

Fyrsta mótiđ búiđ

15. júní 2008 klukkan 19:08
Ég get nú ekki annað sagt en að ég sé bara alveg ótrúlega ánægð með útkomuna á fyrsta mótinu. 55,92 m og bara 8 cm eftir í Ólympíulágmarkið en það besta við þetta allt saman er að ég fann ekkert til í hendinni!! Ég vissi það nú reyndar alveg að lágmarkið myndi ekkert vefjast fyrir mér ef hendin yrði í lagi svo að ég hef engar áhyggjur af því að ég nái ekki þessu lágmarki.

Næsta mót hjá mér núna er bara Evrópubikarinn um næstu helgi þar sem ég keppi bæði í spjóti og kúlu og svo fer ég líklegast á Kaupmannahafnarleikana fimmtudaginn þar á eftir. Framhaldið ræðst svo bara af því hvernig gengur á þessum mótum.

Þessi Þýskalandsferð var alveg ótrúlega skemmtileg og margir eftirminnilegir atburðir þar á ferð. Svona til dæmis hef ég aldrei farið jafn hratt í bíl á ævinni eins og þegar við vorum sótt á flugvöllinn og vorum að fara á hótelið. Drengurinn var bara að krúsa á 200 í góðum fíling og hægði ekki einu sinni á sér í beygjunum. Hann má nú eiga það að hann er ansi góður bílstjóri en mér stóð nú samt ekki á sama. Mestallan tímann var ég svo stressuð að ég þorði ekki einu sinni að líta af veginum! Við eyddum svo síðasta deginum í Berlín þar sem við áttum ekki flug fyrr en seint um kvöldið, þar röltum við um með Bjögga, Stebba og Tobba og sáum ansi marga merkilega hluti. Það er alveg spurning um að skoða borgina betur eftir heimsmeistaramótið á næsta ári (sem er í Berlín).Glottandi Á flugvellinum tókst mér svo að sanna það endanlega að ég er mesti klaufi Í HEIMI! Ótrúlega skemmtileg ferð sem var besta fyrsta keppnisferð sem ég hefði getað hugsað mér!


Ásdís verðandi Ólympíufari! Hlæjandi
Ásdís Hjálmsdóttir
3 athugasemdir

Nýja vinnan og fyrsta mótiđ

05. júní 2008 klukkan 20:41
Fyrstu dagarnir í nýju vinnunni eru búnir að vera mjög fínir og mér líst bara alveg rosalega vel á þetta. Það er ekkert smá gaman að vinna við eitthvað sem maður er að læra og hefur áhuga á og svo er mjög nice fólk að vinna með mér. Það er bara verst hvað það verður mikið púsluspil að reyna að vinna í kringum allar þessar utanlandsferðir og vesenið byrjar meira að segja strax í næstu viku. En á þriðjudaginn er ég að fara út á fyrsta mótið mitt í næstum 2 ár!! Það er semsagt komið á hreint að ég keppi á miðvikudaginn í Cotbus í Þýskalandi. Ég veit reyndar ekkert um mótið og keppinauta ennþá en ég hef nú litlar áhyggjur af því. Eina markmiðið mitt á þessu móti er að kasta vel (og auðvitað að meiða mig ekki) og tölurnar eru algjört aukaatriði. Það má nú reyndar alveg búast við því að ég verði soldið eins og belja á svelli svona á fyrsta móti þannig að ég ætla bara að hugsa um að reyna að kasta vel. Ég verð nú samt að viðurkenna að ég er orðin soldið spennt og hlakka til að sjá hvernig þetta fer allt saman.

Ásdís spennta!
Ásdís Hjálmsdóttir
13 athugasemdir

Komin heim aftur

02. júní 2008 klukkan 10:26
Þá er ég komin heim aftur og sem betur fer búin að jafna mig á þessari matareitrun eða hvað þetta nú var. Það var alveg nóg að gera um leið og ég kom heim en meðal annars fór ég í útskriftina hennar Dagrúnar minnar á föstudaginn og svo voru nokkurs kona landsliðsæfingabúðir á laugardaginn. Í æfingabúðunum prófaði ég að kasta í fyrsta skipti í ár með fullri atrennu og það gekk bara svona glimrandi vel. Ég fann semsagt ekkert til í hendinni þannig að ég er að verða tilbúin að byrja að keppa!!Hlæjandi Það er nú reyndar eitthvað á reiki með fyrsta mótið mitt núna en það ætti að verða annaðhvort 11. eða 16. júní.

En yfir í aðeins aðra sálma þá er ég að fara að byrja að vinna í Lyfju í Lágmúla á morgun sem er nú kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að ég hef verið að fara svo mikið út síðastliðin sumur að ég hef ekki unnið síðan 2004!! Já ég fékk líka smá sjokk þegar ég fatttaði þetta sjálf! Þegar ég fór að sækja um þessa vinnu var ég alveg nett stressuð, bæði vegna þess að ég varð að fá hana en var engan veginn viss um að ég myndi gera það og vegna þess að ég hef ekki sótt um vinnu síðan 2002! Orðin ansi ryðguð í þessu öllusaman! Ég var nú reyndar mjög heppin að fá vinnuna þar sem ég verð svo mikið úti í sumar að ég er ekki beint eftirsóknarverðasti starfskrafturinn en það bjargaði mér alveg að ég verð svo lítið í skólanum í haust að ég get unnið slatta þá. Vildi bara deila þessu með ykkur þar sem ég er mjög spennt yfir þessu öllu saman, líst vel á þessa vinnu og það er bara gaman að fara að vinna aftur eftir 4 ára pásu...hehe!

Ásdís með heila olnbogann!
Ásdís Hjálmsdóttir
4 athugasemdir