Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Ásdís Hjálmsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: Íţróttamađur og námsmađur
  • Hjúskaparstađa: Á föstu
  • Um mig: Ef ţiđ viljiđ vita eitthvađ meira um mig ţá er msniđ mitt asdis_hjalms@hotmail.com og mailiđ asdishjalms@gmail.com.

Innskráningar kubbur

Leit

Hendin og ferđalagiđ mikla

31. júlí 2008 klukkan 18:37
Það er kannski kominn tími til að útskýra þetta stutta blogg mitt aðeins betur. Til að byrja með er kannski rétt að segja frá því sem allir vita en ég bætti mig í Finnlandi og kastaði 59,80 m. Það sem gerði ferðina hins vegar aðeins minna gleðilega er að í næsta kasti á eftir kom eitthvað vitlaust átak á olnbogann á mér og ég fékk verk utaná olnbogann...semsagt ekki á sama stað og gömlu meiðslin! Ég bólgnaði upp og þess vegna ákvað ég að keppa ekki á Meistaramótinu heldur leyfa þessu að jafna sig.

Þetta lítur mjög vel út í dag og ætti að vera í fínu lagi fyrir stóra daginn! Við þurftum bara aðeins að breyta undirbúningnum útaf þessu og ég tek meira af lyftingum og sprettum í staðinn og kasta boltum til að viðhalda styrk í öxlunum. Það er kannski rétt að taka það fram að ég gat í raun mjög lítið kastað á undirbúningstímabilinu fyrir sumarið og gerði því einmitt mjög mikið af þessu og ekki reyndist það nú illa! Ég er samt byrjuð að kasta aftur núna og vonandi munu köstin sem ég næ héðan í frá duga.

Það er orðið hrikalega stutt í að við förum út en það verður lagt í hann eldsnemma á mánudaginn. Ég er byrjuð að vinna í því að snúa sólarhringnum við...það hljómar auðvelt en það er það alls ekki þegar maður gerir það með því að fara fyrr að sofa og vakna fyrr. Já það er rétt ég á eftir að enda með að fara að sofa kl 19 á sunnudaginn og vakna kl 3 á mánudag svo að ég held að ég verði ekki skemmtilegasti félagsskapurinn um helgina...aumingja Símon! Flugplanið okkar er svo Kef-Frankfurt, Frankfurt-Peking, Peking-Osaka og svo er það rúta eða lest frá Osaka til Marugame þannig að ég gæti trúað því að ég verði soldið búin á því þegar við komumst loksins til Marugame á þriðjudaginn.

Jæja nóg af blaðri í bili ég er farin í mat hjá tengdó, læt kannski heyra í mér áður en ég fer út.

Ásdís bjartsýna
Ásdís Hjálmsdóttir
6 athugasemdir

Change of plans

24. júlí 2008 klukkan 08:29
Það hefur orðið smá breyting á planinu og því miður keppi ég ekki á Meistaramótinu um helgina vegna smá bakslags. Ekkert alvarlegt en næsta mót verður þá bara Ólympíuleikarnir!
Ásdís Hjálmsdóttir
3 athugasemdir

Finnland og MORGUNćfingar

17. júlí 2008 klukkan 22:10
Það er víst kominn tími á að láta aðeins heyra frá sér! Undanfarið hef ég gert lítið annað en að æfa og vinna en um helgina verður rútínan aðeins brotin upp og ég er að fara til Finnlands að keppa. Þetta er ágætlega sterkt mót og flestar bestu finnsku stelpurnar eru með en fyrir þá sem ekki vita þá eiga Finnar mjög góða spjótkastara. Við Stebbi förum út á laugardaginn, ég keppi á sunnudag og svo förum við heim á mánudaginn þannig að þetta er bara svona smá skreppitúr.

Eftir þetta mót á ég bara Meistaramótið eftir fyrir Ólympíuleikana en það er 26.-27. júlí. Reyndar æfi ég soldið í gegnum þessi mót og létti ekki mikið þar sem ég er nú fyrst og fremst að hugsa um að toppa í Peking en ég held samt að ég eigi að geta bætt mig þar sem ég á svo hrikalega mikið inni. Ég kjánaðist reyndar til þess að gera soldið fyndið veðmál í gær....og tja við skulum orða það þannig að ég svona semi vona að mér takist ekki að kasta 65 m í Peking...hehe!

Í dag byrjuðum við að breyta rútínunni minni fyrir Ólympíuleikana en á leikunum keppi ég mjög snemma um morguninn svo að við þurfum að venja mig við að kasta þegar ég er nývöknuð. Þetta þýddi náttúrulega bara kastæfingu kl 7 í morgun og ég verð nú bara að viðurkenna að þetta var alls ekki eins erfitt og ég hélt að það myndi vera. Ég fékk nú samt smá svona "ERTU AÐ GRÍNAST!!" tilfinningu þegar vekjaraklukkan hringdi kl 6! Svo var ég bara alveg helvíti spræk þegar ég var komin niðrá völl og byrjuð að skokka fyrir 7. Ég veit að það eru margir sem gera þetta á hverjum degi en það verður víst að fylgja sögunni að ég er sennilega morgunfúlasta manneskja í heimi og það hefur aldrei verið mín sterkasta hlið að gera eitthvað af viti snemma á morgnana.

Ég kem með fréttir eftir mótið á sunnudaginn og vonandi verða þær góðar.

Ásdís morgunhani

PS: TAKK SAMMI!! Hlæjandi
Ásdís Hjálmsdóttir
21 athugasemdir

Bikarinn

04. júlí 2008 klukkan 14:28
Í dag byrjar bikarinn á Kópavogsvelli og fyrir áhugasama þá keppi ég kl 18 í spjótinu. Glottandi Það verður alveg nóg að gera hjá mér af því að eins og venjulega keppi ég í öllum 4 kastgreinunum en sem betur fer er spjótið fyrst svo að ég get einbeitt mér 100% að því og vonandi tekst mér að kasta enn lengra en ég er búin að gera.

Því miður er liðið okkar Fjörmenninga ekki eins sterkt í ár og við hefðum viljað þar sem Svenni, Helga Margrét og Íris Anna eru öll að fara út á HM 19 ára og yngri á sunnudaginn og keppa þar í næstu viku. Það er því augljóslega ekki hægt að þræla þeim út eins og við hefðum gert ef mótið hefði verið í haust eins og það er venjulega. En á næsta ári verður þetta síðasta mót svo að við tökum þetta bara þá!Hlæjandi

Ætla ekki að hafa þetta langt í bili, vildi bara minna fólk á að senda mér spjótkaststrauma kl 18...nú eða bara koma á völlinn og öskra á mig! Glottandi Svo vildi ég líka þakka ykkur öllum sem eruð búin að kommenta eða senda sms fyrir hamingjuóskirnar. Ég hef bara ekki haft undan að svara hverjum og einum svo ekki taka því persónulega...ég væri líklegast farin á hausinn ef ég gerði það! Takk öll, þið eruð æði!

Ásdís kastari með meiru
Ásdís Hjálmsdóttir
3 athugasemdir