Prag
08. júní 2009 klukkan 10:47
Nú er ég komin til Prag og er að fara að keppa á eftir. Ég verð nú að viðurkenna að það er ekki laust við að ég sé bara orðin vel spennt! Það verður hörku keppni á eftir og ég fílaði mig rosalega vel á æfingunni í gær svo að vonandi fer nú spjótið að fara eitthvað aðeins lengra. Völlurinn hérna er alveg æðislegur, það eru tré allt í kringum hann og þetta er voðalega tékkneskt eitthvað....æji erfitt að lýsa því en þið sjáið þetta þegar ég set inn myndirnar. Vinkona mín frá Austurríki er að fara að keppa hérna líka (í spjótinu) svo að ég er ekki búin að þurfa að hanga ein allan tímann heldur er ég búin að vera mikið með henni og herbergisfélaga hennar sem er líka spjótkastari. Við fórum í smá göngutúr í gærkvöldi og römbuðum á einhverskonar útsýnispall þar sem við höfðum bara útsýni yfir alla borgina og vá þetta er sko alveg ótrúlega falleg borg. Ég vildi að ég hefði meiri tíma til að skoða hana en við erum búnar að ákveða að fara út að borða niðrí bæ í kvöld eftir keppnina og þá fæ ég að sjá aðeins meira. Vonandi hef ég eitthvað til að halda uppá! 
Það er mjög fyndið að hérna líta allir upp til manns af því að maður er spjótkastari og er að fara að keppa við Spotakovu (heimsmethafann sem er tékknesk) af því að hún er svo mikið idol hérna. Venjulega eru spretthlaupararnir í mesta uppáhaldinu en hérna fær maður bara vááá ertu spjótkastari....frekar fyndið og lúmskt gaman!
Það er greinilegt að hún nýtur mikillar virðingar hérna. Við Elisabeth (austurríska stelpan) vorum einmitt að tala um það í gær á leiðinni á æfingu hvað það er mikil fótboltadýrkun í okkar löndum og ég var að segja henni hvernig er búið að koma fram við okkur á Laugardalsvellinum. Svo komum við á völlinn og það var þessi stóri leikvangur sem að Spotakova æfir á daglega og við fórum að djóka með það hvort að hún sé rekin af grasinu hérna líka og öskrað á hana og læti. Ég stórlega efast um það og ég er alveg viss um að þó að ég myndi einhvern tímann setja heimsmet þá fengi ég ekki einu sinni að hlaupa atrennu á laugardalsvellinum án þess að einhver færi að tuða í mér.
En jæja nóg um það, ég kem með fréttir af mótinu um leið og ég get og vonandi verða þær góðar! Allir að senda mér alla þá spjótkaststrauma sem þeir eiga til kl 17 að íslenskum tíma!

Það er mjög fyndið að hérna líta allir upp til manns af því að maður er spjótkastari og er að fara að keppa við Spotakovu (heimsmethafann sem er tékknesk) af því að hún er svo mikið idol hérna. Venjulega eru spretthlaupararnir í mesta uppáhaldinu en hérna fær maður bara vááá ertu spjótkastari....frekar fyndið og lúmskt gaman!
Það er greinilegt að hún nýtur mikillar virðingar hérna. Við Elisabeth (austurríska stelpan) vorum einmitt að tala um það í gær á leiðinni á æfingu hvað það er mikil fótboltadýrkun í okkar löndum og ég var að segja henni hvernig er búið að koma fram við okkur á Laugardalsvellinum. Svo komum við á völlinn og það var þessi stóri leikvangur sem að Spotakova æfir á daglega og við fórum að djóka með það hvort að hún sé rekin af grasinu hérna líka og öskrað á hana og læti. Ég stórlega efast um það og ég er alveg viss um að þó að ég myndi einhvern tímann setja heimsmet þá fengi ég ekki einu sinni að hlaupa atrennu á laugardalsvellinum án þess að einhver færi að tuða í mér.En jæja nóg um það, ég kem með fréttir af mótinu um leið og ég get og vonandi verða þær góðar! Allir að senda mér alla þá spjótkaststrauma sem þeir eiga til kl 17 að íslenskum tíma!
Ásdís Hjálmsdóttir
2 athugasemdir
2 athugasemdir
